Gleðilegt ár og takk fyrir það liðna.
Jólavikan
Þessa síðustu viku fyrir jól hefur margt verið í gangi hjá okkur í skólanum. Á mánudag voru nemendur að útbúa og skrifa jólakort til skólafélaga sinna. Næsta dag var rauður dagur í skólanum og þá var jólaþema. Nemendum var skipt í þrjá hópa og fór á þrjár föndurstöðvar þar sem...
Vel heppnuð ferð í Þjórsárdal
Í dag fórum við í jólaferð í Þjóðskóginn í Þjórsárdal. Allir nemendur og allt starfsfólk skólans fór ásamt mörgum foreldrum og nokkrum systkinum nemenda. Farið var í leik í myrkrinu þar sem nota þurfti vasaljós til að finna stöðvar með endurskinsmerkjum. Svo var farið í samvinnu- og hlaupaleik áður en...
Niðurstöður samræmdra prófa 2009.
Við í Þjórsárskóla erum nokkuð ánægð með árangur nemenda okkar á samræmdum könnunarprófum í haust. Fyrstu tölur sýna að skólinn er yfir landsmeðaltali í íslensku bæði í 4. og 7. bekk og einnig er 7. bekkur yfir landsmeðaltali í stærðfræði. Þar er 4. bekkur þó undir landsmeðaltali. Ekki er hægt...
Heimsókn á slökkvistöðina
Þessa vikuna er eldvarnarvikan sem 3. bekkur tekur þátt í. Í tilefni þess fór hópurinn með kennara í heimsókn á slökkvistöðina þar sem varðstjóri slökkviliðsins tók á móti þeim og fræddi þá um eldvarnir og viðbrögð. Þeir fengu svo að skoða alla aðstöðu slökkviliðsins og fengu höfuðljós að gjöf.
Dagur íslenskrar tungu
Í tilefni af degi íslenskrar tungu og alþjóðlegrar athafnaviku voru í dag tveir viðburðir í Þjórsárskóla. Fyrir hádegi komu leikskólabörn af Leikholti í heimsókn og voru með samverustund á sal með 1.-3. bekk. Þessi hópur hittist á mánudögum og vinnur saman ýmis verkefni. Samverustund þeirra fólst í söng, sögulestri, flutningi á þulum og...
Raddir barna
Í tilefni af degi íslenskrar tungu og alþjóðlegrar athafnaviku verður haldið málþing barna í Þjórsárskóla á mánudag. Allir nemendur skólans munu tjá skoðun sína á ýmsum málefnum sem brennur á þeim. Yngstu nemendur skólans tala styttra þannig að helstu framsöguerindin verða í höndum eldri nemenda. Það er 7. bekkur sem...
Skógardagar
Allt starfsfólk Þjórsárskóla og nemendur hafa verið við nám og störf í þjórsárdal síðustu tvo daga. Á þriðjudag var íslenskuþema. Þá voru verkefni unnin eftir hugmyndafræði Cornells um útikennslu. Nemendur hlustuðu á sögur, unnu eftir vísbendingum, teiknuðu, fluttu ljóð og héldu ræður. Þann daginn var komið heim í skóla í...
Kórinn kemur fram
Kór skólans kom fram á 100 ára afmæli Stóra- Núpskirkju í gær. Það voru 20 nemendur í 4.-7. bekk sem mættu og sungu þrjú lög fyrir gesti undir stjórn Stefáns Þorleifssonar. Söngurinn tókst vel og fékk kórinn lof fyrir. Þessi fyrsti söngflutningur kórsins lofar góðu um framhaldið og verður gaman...
100 ára afmæli Stóra-Núpskirkju
Haldið verður upp á 100 ára afmæli Stóra-Núpskirkju þann 1. nóv. n.k. Hátíðin hefst með messu í kirkjunni kl. 14 Vegna þessa mun séra Axel sóknarprestur koma í skólann þriðjudaginn 27. okt. og ræða við nemendur um kirkjur prestakallsins, sóknir þess og afmælishátíðina sem framundan er. Að lokinni messunni þann...