Skólavistun

Boðið er upp á skólavistun til kl. 16:00 mánudaga – fimmtudaga þá daga sem kennsla er. Mánudaga frá kl. 13:35, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 12:15. Vistunarstaður er Þjórsárskóli, Árnesi. Ekki er nauðsynlegt að nemendur séu vistaðir alla dagana og hægt er að semja um tímalengd. Þurfi foreldri að lengja vistunartímann í einstök skipti þarf að greiða fyrir það aukalega.

í skólavistun eru nemendur í frjálsum leik úti og inni eftir aðstæðum hverju sinni. Svæði skólavistunar í Þjórsárskóla er í kennslustofa 1.-2. bekkjar og einnig eru önnur svæði skólans s.s. eldhús og opin rými notuð.

Hámarksfjöldi í vistun þ.e. nemenda í 1. – 4. bekk er 20.

Símanúmer skólans er 486-6000.


Starfsmenn skólavistunar er Hrönn Brandsdótir gsm sími: 8669923 og Eyrún Ösp Sigurðardóttir gsm sími: 7720293

Reglur um skólavistun

  1. Boðið er upp á skólavistun til kl. 16:00 mánudag – fimmtudags, þá daga sem kennsla er. Vistunarstaður er Þjórsárskóli, Árnesi. Ekki er nauðsynlegt að nemendur séu vistaðir alla dagana og hægt er að semja um tímalengd. Þurfi foreldri að lengja vistunartímann í einstök skipti þarf að greiða fyrir það aukalega sbr. verðskrá.
  2. Hámarksfjöldi einstaklinga í vistun þ.e. nemenda í 1. – 4. bekk er 20.
  3. Tveir starfsmenn starfar við vistunina ásamt skólastjóra sem sinnir umsjón. Nemendur fá síðdegishressingu.
  4. Til þess að starfsemin geti þrifist þurfa að vera a.m.k. þrír nemendur í vistun.
  5. Nái fjöldi nemenda ekki tuttugu er heimilt að taka nemendur inn dag og dag í aukavistun. Jafnframt geta þeir sem eru með börn sín í vistun ákveðinn tíma lengt daginn vegna sérstakra ástæðna eða bætt öðrum við gegn aukagreiðslu.
  1. Boðið verður upp á skólaakstur í Brautarholt um kl. 16 þá daga sem vistun er ef þrir eða fleiri nemendur þiggja akstur.
  1. Taxti – skólavistunar.

           Kostnaður pr. klst. er kr. 394

           Síðdegishressing  kr.118.-

           Ef beðið er um aukavistun kostar klst. 483.- og náðarkorterið kr. 724.-.

          Taxti fylgir breytingum á gjaldskrá sveitarfélagsins.

          Systkinaafsláttur: Yngsta barn greiði fullt gjald, 25% af öðru barni 50% af því þriðja. Einstæðir foreldrar fái 25% afslátt af vistunargjaldi.

  1. Sækja þarf um breytingar á vistunartíma með minnst 30 daga fyrirvara.

Ef eitthvað óvænt kemur upp á og ekki næst í skólastjóra skal nýta símanúmer starfsmanns.

Gjaldskrá 2024

Breytingar samþykkt í skólanefnd 6.12.2017

Algengir hlekkir

Almennar upplýsingar