Frétt af 3.-4.bekk

Fyrstu vikur skólaársins gerðum við margt í sambandi við haustið í náttúrufræði.  Rétt eftir að skólinn byrjaði fórum við út og söfnuðum jurtum til að pressa.Við settum þær í dagblöð og síðan þungar bækur yfir.   Við bjuggum til bók og límdum plönturnar okkar í hana og merktum þær. Sumar þekktum...

Aðventukvöld 27. nóvember

Fyrsti sunnudagur í aðventu var haldinn hátíðlegur á sunnudaginn. Að því tilefni lásu, sungu og léku nemendur skólans fyrir gesti í Brautarholti. Þetta kvöld var snjór og frost, sannkallað jólaveður. Það ásamt fallegum flutningi barnanna var góð byrjun á jólaföstunni og undirbúningi fyrir jólin.

Aðalfundur FÁS

  Venjuleg aðalfundarsörf. / Skýrsla formanns, gjaldkera og kosningar. Kaffiveitingar   Með bestu kveðju.

Dagur gegn einelti 8. nóvember

Allir dagar í Þjórsárskóla eiga að vera dagar án eineltis. Dagurinn í dag var tileinkaður baráttunni gegn einelti.  Í tilefni af þessum degi þá unnum við öll saman verkefni undir yfirskriftinni virðing og vinátta. Byrjað var á því að safnast saman í salinn þar sem við fengum fræðslu og leikþætti...

Tónlist fyrir alla

Í dag fengum við góða gesti í skólann á vegum Tónlist fyrir alla. Þetta voru Matthías Stefánsson á fiðlu, Vignir Þór Stefánsson á píano og Jón Rafnsson á bassa. Tilgangurinn með heimsókninni var að kynna tangó frá ýmsum löndum fyrir nemendum, bæði tónlistina og dansinn. Þetta var mjög áhugavert og...

Skógurinn og stærðfræðinám

Í dag fórum við inn í Þjórsárdal í útinám þar sem efniviður skógarins var notaður í stærðfræðiþrautir og leiki. Fyrst var farið í hópvinnu þar sem nemendur notuðu greinar og köngla til þess að búa til ýmis stærðfræðidæmi, rómverskar tölur, jákvæðar og náttúrulegar tölur og parís. Í nestistímanum fengu allir...

Landgræðsluferð

Í dag fórum við í hina árlegu landgræðsluferð í Skaftholtsfjall. Kalt var í veðri en sól og lygnt. Flestir voru þó vel klæddir. Sigþrúður Jónsdóttir tók á móti okkur með fræðslu og stýrði verkefnum dagsins. 1. og 2. bekkur fékk það verkefni að dreifa úr heyrúllu sem Landbótafélag Gnúpverja færði...

Form frá 1.-2.bekk

Við í 1. og 2. bekk erum að læra um form í stærðfræði.  Við fórum út og fundum fullt af húsum sem eru með ýmis konar form.  Svo tíndum við laufblöð og okkur var skipt í hópa.  Hóparnir fundu út ýmis konar mynstur með laufin.  Mynstrin voru misjöfn, stórt ,...

Réttarvikan

Dagana 12. – 14. september  unnu nemendur í 1.-7. bekk þemaverkefni um réttir. Búin voru til veggspjöld, sungin lög og kvæði og á miðvikudeginum var síðan endað á því að fara í gönguferð í Skaftholtsréttir. Þar fræddu  Árdís og Kjartan nemendur um sögu réttanna í sveitinni, sungin voru lög, borðað...