Sundmót Þjórsárskóla

Sundmót Þjórsárskóla


Þriðjudaginn 14. febrúar var hið árlega sundmót skólans haldið í Brautarholtslaug. Nemendur úr 5.-7. bekk kepptu í bringusundi og skriðsundi í dásamlegu veðri.

Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í stúlkna og drengjaflokki. Óskum við þessu efnilega sundfólki til hamingju.

Stúlkur:

Gull – Eydís Birta Þrastardóttir
7. bekk

Silfur – Ljósbrá Loftsdóttir  7. bekk

Brons – Sigríður Lára  Jónasdóttir 7. bekk

Drengir:

Gull – Kolbeinn Loftsson 5. bekk

Silfur – Jónas Ásólfur J. Schougaard 7. bekk

Brons – Matthías Bjarnason 7. bekk

Eftir sundmótið fengu allir keppendur að fara í fatasund og yngri nemendur að fara í laugina og leika sér. Myndir frá deginum hafa verið settar inn á sameignina.