Vikan framundan

Fimmtudagur 13. október - Skólahópur Leikholts hjá okkur fram að hádegi Föstudagur 14. október - Bleiki dagurinn. Landsmenn eru hvattir til þess að sýna lit og klæðast bleiku. Í vikunni förum við af stað með verkefnið Jól í skókassa. Nánari upplýsingar verða sendar í tölvupósti.

Kennaraþing

Í síðustu viku var Haustþing Kennarafélag Suðurlands, sem þetta árið var haldið á Flúðum. Opnunarfyrirlesturinn var með Bergi Ebba um þróun tækninnar og áhrif hennar á samfélagið. Síðan fóru kennararar á hin ýmsu fræðsluerindi sem þeir munu síðan nýta sér í starfi.

Vikan framundan

Mánudagur 3.október - Foreldraviðtöl Þriðjudagur 4.október - Brautarholtssund Fimmtudaginn 6. október - Skólahópur leikskólans hjá okkur Föstudagur 7. október - Öðruvísi dagar þar sem yfirheitið er "Öðruvísi þú". Allir klæða sig á einhvern hátt, öðruvísi en þeir eru vanir.

Foreldraviðtöl og kennaraþing

Minni ykkur á að kennaraþing haustsins er eftir hádegi á fimmtudaginn og allan föstudaginn. Nemendur eru keyrðir heim kl. 11:55 á fimmtudaginn og það er ekki skóli á föstudaginn. Foreldraviðtöl verða á mánudaginn, nemendur í 2.-7.bekk koma með foreldrum sínum í viðtöl hjá umsjónarkennurum.

Tónleikar í Árnesi

Fimmtudaginn 22.september fengu nemendur í 3.-7.bekk Sinfoníuhljómsveit Suðurlands í heimsókn. Fyrst voru hljóðfærin kynnt og síðan var flutt tónverkið: Stúlkan í turninum.

Vikan framundan

Mánudagurinn 26.september – Opnað fyrir foreldraviðtöl í Mentor Miðvikudagur 28.september – Hjúkrunarfræðingur kemur og bólusetur nemendur í 7.bekk. Fimmtudagur 29.september – Kennaraþing eftir hádegi. Nemendur fara heim með skólabílum 11.55. Föstudagur 30.september – Kennaraþing. Ekki skóli. Mánudagur 3.október – Foreldraviðtöl. Nemendur í 2.-7.bekk mæta í viðtöl með foreldrum sínum. Viðtöl...

Vikan framundan

Fimmtudagur 22. september  7. bekkur frá Flúðum í skólaheimsókn Sinfoníuhljómsveit Suðurlands kemur og spilar fyrir 3.- 7.bekk.

Hjólaferð og landgræðsluferð

Hjólaferðinna okkar verður fimmtudaginn 15. sep eftir hádegi. Og á föstudaginn 16. sep., sem er "Dagur íslenskrar náttúru" förum við í landgræðsluferð kl 10:00

Réttir

Réttað verður í Skaftsholtsréttum og Reyjaréttum í lok vikunnar , við erum að vinna með réttaþema í þessari viku. Minni á að það er ekki skóli á föstudaginn.