Sumarlestur

Sumarlestur

Í sumar var 11 árið í röð sem verkefnið „Sumarlestur“ var í gangi í Þjórsárskóla en meirihluti nemanda tók þátt í verkefninu þetta árið sem er frábært. Markmiðið með verkefninu er að auka lestraráhuga, hvetja nemendur til þess að vera dugleg að lesa á sumrin og þar með viðhalda þeim framförum sem þau hafa náð yfir veturinn.  Að hausti er veitt viðurkenning fyrir þátttöku í verkefninu og þetta árið fengu börnin sundpoka merktan skólanum, verðlaunapening og smáhluti frá VÍS og Vodafone.