Gleðilega páska

Í dag var bíósýning á upptökunni frá árshátíðinni. Við poppuðum og blönduðum djús og nutum veitinga í salnum yfir sýningunni. Það er alltaf skemmtilegt fyrir krakkana að fá að horfa á sýninguna líka. Við bjóðum ykkur að kaupa dvd disk með upptöku frá árshátíðinni. Hafið samband við skólann ef þið...

Páskaundirbúningur

Þessa viku eru krakkarnir að skreyta stofuna með páskaskrauti sem fær að fara heim síðasta dag fyrir páska. Það eru margar skemmtilegar föndurhugmyndir í gangi sem koma vel út. Í dag fóru allir nemendur á árshátíðarsýningu í Flúðaskóla að sjá Ávaxtakörfuna. Það var mat okkar kennara að nemendur kunna jafn...

Safnaferð eldri nemenda

Nemendur í 5.-7. bekk fóru í ferð til Reykjavíkur.  Byrjað var í Hafnarhúsinu þar sem þeim var sýnt húsið og endað á að skoða sýningu af verkum Erró. Mikið af verkefnunum voru klippimyndir hans sem er forvinna fyrir málverk. Þrívíddarverk voru skoðun líka sem voru unnin úr ýmis konar rusli. Eftir það...

Skógarkennsla

Í dag var skógarkennsla hjá öllum nemendum fyrir hádegi. Kennslu var skipt í yngri og eldri hóp og svo aftur í minni hópa innan hvors hóps. Verkefni sem unnin voru tóku mið af markmiðum og kennsluefni í íslensku, samfélags/náttúrurfræði og stærðfræði. Skipulag var í höndum Stefaníu Eyþórsdóttur kennaranema sem jafnframt...

Árshátíð

Nú er vika liðin frá árshátíð skólans sem tókst frábærlega. Allir leikarar stóðu sig mjög vel, hvort sem það voru margar eða fáar innkomur í leikritinu. Söngurinn þeirra var einnig til fyrirmyndar og ótrúlegt að hér er um fjórðungur nemenda sem syngja einsöng á árshátíð skólans! Það er frábært. Krakkarnir...

Árshátíð í kvöld

Í kvöld er árshátíð Þjórsárskóla. Nemendur sýna Konung ljónanna með söng og leik. Það er hljómsveit Stefáns Þorleifssonar tónmenntakennara sem spilar undir. Undirbúningur hefur staðið yfir síðustu tvær vikur. Fyrri vikan með daglegum söng og seinni vikan í heildstæða vinnu um efni árshátíðar. Nemendur og starfsmenn hafa varið öllum stundum í undirbúning og...

Öskudagur

Á öskudag var haldið hið árlega ball með litskrúðugum furðuverum. Jón Bjarnason sá um fjörið. Eftir háltíma upphitun var kötturinn sleginn úr tunnunni. Tvær tunnur voru, önnur fyrir 1.-3. bekk og hin fyrir 4.-7. bekk. Yngri nemendur náðu sinni tunnu í sundur fyrr en þeir eldri. Foreldrafélagið gaf gos og sælgætispoka...

Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk

Föstudaginn 4, mars var skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk. Það voru fjórir nemendur sem lásu fyrir nemendur í 5.-6. bekk, starfsmenn og dómara. Dómarar voru Jenný Jóhannsdóttir kennari og Halla Guðmundsdóttir leikkona. Sigurvegarar urðu Stefanía Katrín Einarsdóttir og Arnþór Ingvar Hjörvarsson. Allir nemendur stóðu sig vel og hafa bætt sig ótrúlega mikið á æfingatímanum sem...

Myndmennt og tölvur

Nemendur í 4. bekk unnu verkefni um bóndabæi í myndmennt á haustönn. Reglulega í vinnunni voru teknar myndir af verkunum og þær síðan notaðar til að setja saman í myndband í tölvukennslu. Það er Bente Hansen sem hefur samþætt verkefnin með nemendum og má sjá afraksturinn með því að velja viðkomandi...

Danskur farandkennari

Þessa vikuna hefur Hanne farandkennari verið í skólanum. Danska var kennd í öllum hópum og vinnuþemað var matur. Í yngri bekkjunum var leikið og spilað bingó með orðum um mat. Eldri hóparnir útbjuggu götu með margskonar þjónustu, s.s. hótel, bakarí, sjoppu, veitingastað og þess háttar. Þau gerðu verðskilti, tilboðsbæklinga, matseðla...