Kartöflurækt

Föstudaginn 7. maí fór 6. bekkur út í kartöflugarðinn okkar. Þau pældu hann og setti moltu úr lífrænu tunninni okkar í garðinn, gerðu stíga og nú er hann tilbúinn þannig að hægt er að setja niður kartöflur. Nemendur voru áhugasamir í þessari vinnu og unnu vel.    

Vikan framundan

Mánudagur 3. maí - Starfsdagur - Nemendur frí Þriðjudagur 4. maí - Brautarholtssund. Guðný María námsráðgjafi hér. Fimmtudagur 6. maí - Hjálmafræðsla hjá 1. - 2. bekk. Nú hefur verið send könnun á öll heimili um Heilsueflandi grunnskóla. Væri gott að fá svör fyrir helgi.  

Litla upplestrarkeppnin

21. apríl var Litla upplestrarhátíðin haldin og voru það nemendur í 4. bekk sem spreyttu sig á upplestri. Formlega hófst undirbúningstímabilið 16. nóvember en síðustu vikurnar fyrir hátíðina var allt kapp lagt í það að æfa upplesturinn sem mest. Einnig fengu þau að fylgjast með forkeppninni hjá 7. bekk 10....

Dagur einhverfunnar

Föstudaginn 9. apríl var Alþjóðlegur dagur einhverfu. Þá klæddumst við bláum fötum í skólanum til þess að sýna samstöðu þessu mikilvæga málefni.

Vikan framundan

Þriðjudagur 20. apríl - Bekkjarkvöld hjá 1. og 2. bekk Miðvikudagur 21. apríl - Litla upplestrarkeppnin hjá 4. bekk. Sigríður hjúkka kemur og hittir 6. bekk. Fimmtudagur 22. apríl - Sumardagurinn fyrsti. Frí í skólanum.  

Hjálmar

Nú á vordögum fékk 1. bekkur hjálma að gjöf frá Lions hreyfingunni á Íslandi.  

Skólabúðir í Reykjaskóla

Dagana 22.-25. mars fór 6. og 7. bekkur í skólabúðir í Reykjaskóla í Hrútafirði. Í skólabúðunum fylgja nemendur stundatöflu eins og í hefðbundum skóla en verkefnin eru með öðru sniði og var lagt áherslu á félagsleg tengsl, fjármál og fjöruna. Að vera í jákvæða liðinu og að velja jákvæðu leiðina...

Árshátíðin okkar

Föstudaginn 19. mars var árshátíðin okkar í Þjórsárskóla. Í ár var unnið með þemað ævintýri, bæði eftir H.C. Andersen og eftir Höllu Guðmundsdóttir, sem skrifaði einnig handritin og leikstýrði nemendum. Árshátíðin er skemmtilegt uppbrot á skólastarfi þar sem allir leggja sitt að mörkum og vinna saman. Nemendur tóku virkan þátt...

Vikan framundan

Skíðaferð sem fyrirhuguð var 16. mars hefur verið aflýst vegns veðurs. Undirbúningur fyrir árshátíðina er á góðu róli og unnið er daglega á stöðvum þar sem verið er að æfa leikritið, búa til búninga, leikmynd og leikmuni. Á föstudaginn verður síðan árshátíðin sýnd. Það verða tvær sýningar, ein fyrir hádegi...

Stóra upplestrarkeppnin

Nú á dögunum var undankeppni upplestrarkeppninnar haldin í skólanum. Þeir nemendur sem munu keppa fyrir hönd skólans eru: Eyþór Ingi Ingvarsson, Vésteinn Loftsson og Baldur Már Jónsson til vara. Það verður gaman að fylgjast með þessum efnilegu drengjum í stóru Upplestrarkeppninni sem haldin verður á Flúðum 14. apríl.