Nýsköpun – markaður

Mánudaginn 6. maí héldum við hér í skólanum Nýsköpunarmarkað, Flóamarkað og kaffihús með 5.-7. bekk auk þess sýningu á stærðfræðiverkefni nemenda í  5.-6.bekk. Nýsköpunarmarkaðurinn er liður í nýsköpunarkennslu sem kennd er í  smíði. Krakkarnir í 5.-7. bekk tóku öll þátt í verkefni vetrarins sem hófst í janúar og fólst í...

Vinátta 1.- 2.bekkur

Við í 1.-2.bekk höfum verið að vinna með vináttuna í vetur. Við æfum okkur reglulega í að hrósa hvert öðru, vinna saman og hjálpast að. Í síðustu viku fórum við síðan í vinaæfingar, buðum vinum okkar upp á handanudd og bjuggum til „vinakremju“.  Fleiri myndir eru undir myndaflipanum hér á...

Söngur í Ólafsvallakirkju

Sunnudaginn 21. apríl sungu nemendur Þjórsárskóla við messu í Ólafsvallakirkju undir stjórn Helgu Kolbeins. Vel var mætt og var yndislegt að hlusta á börnin okkar syngja í þessari fallegu kirkju. Frábært framtak hjá Helgu.

Skógarferð – Listir

Föstudaginn 19. apríl fórum við í dásamlegri vorblíðu í skóginn okkar. Þemað í þetta sinn var „listir“. Nemendur bjuggu til myndir og listaverk úr efnivið skógarins í aldursskiptum hópum og elstu nemendum leikskólans var boðið með okkur.  Margar skemmtilegar myndir úr ferðinni eru komnar inn á myndasameignina.

Hattadagur 17. apríl

Í tilefni afmælisárs skólans ætlum við að hafa „öðruvísi daga“ annað slagið. Við byrjuðum á hattadegi miðvikudaginn 17. apríl. Þá mættu allir með hatta og sumir höfðu meira að segja lagt mikla vinnu í að búa þá til.

Árshátíð 2013

Árshátíðin á föstudaginn markaði upphaf afmælishátíðar skólans. Sýnt var leikritið: Í fylgd með H.C. Andersen auk þess sem verkefni tengd sögu skólanna prýddu salinn. Nemendur fengu góðar undirtektir áhorfenda og  stóðu sig frábærlega bæði í leik og söng. Eftir sýninguna fengum við fínt veislukaffi  í  umsjón foreldrafélagsins.  Myndir væntanlegar inn...

Stóra upplestrarkeppnin

Í dag var lestrarkeppni innan skólans hjá nemendum í 7. bekk. Valdir voru tveir nemendur sem fara áfram sem fulltrúar skólans, í aðalkeppnina, sem verður í Aratungu á mánudaginn. Komið var saman á sal skólans og allir nemendur í 7. bekk komu í púlt og lásu upp kafla úr bók...

Lífshlaupið

Grunnskólakeppni Lífshlaupsins er nú lokið og endaði Þjórsárskóli í 6.sæti eins og hægt er að sjá á heimasíðunni; www.isi.is Gaman var að taka þátt í þessari keppni og stefnum við á að gera enn betur á næsta ári.

Nýtt landgræðsluverkefni

Þjórsárskóla hefur verið boðið að taka þátt í verkefni með Landvernd og Landgræðslu ríkisins.  Verkefni ber heitið „Fræðsla ungmenna og vistheimt á örfoka landi á Suðurlandi“.  Þremur skólum  er  boðið að vera með. Þetta er Hvolsskóli, Grunnskólinn á Hellu ásamt okkur.  Þessir skólar voru valdir þar sem þeir eru allir...