Vikan framundan

Þriðjudagur 9. apríl - Gróa hjúkrunarfræðingur hér. Bekkjarkvöld hjá 3.- 4.bekk. Fimmtudagur 11. apríl - 1.- 4. bekkur í Leikholt á sýningu. Litla upplestrarkeppnin hjá 4. bekk kl. 13.  Föstudagur 12. apríl - Páskaferð í skóginn. Síðasti skóladagur fyrir páska.   

Páskaungar

Það ríkti mikil eftirvænting hjá nemendum í vikunni. Valgerður á Húsatóftum kom með útungunarvél í skólann og börnin fengu að fylgjast með litlum hnoðrum skríða úr eggjum. Takk fyrir Valgerður.      

Vikan framundan

Þriðjudagur 2.apríl - Brautarholtssund. Miðvikudagur 3. apríl - Nemendum í 1.-7.bekk boðið á leiksýningu á Flúðum. Fimmtudagur 4. apríl - Nemendum í 5.-7.bekk boðið á leiksýningu unglingadeildar á Flúðum.  

Lokahátíð stóru upplestrarkeppninnar

Þriðjudaginn 26. mars var lokahátíð stóru upplestrarkeppninnar haldin á Laugarvatni. Alls kepptu níu nemendur úr fimm skólum. Fyrir Þjórsárskóla kepptu Sóldís Dúna og Þórhildur. Báðar stóðu sig mjög vel. Sóldís spilaði líka á píanó fyrir viðstadda. Þórhildur hreppti annað sætið. Við erum mjög stolt af þeim árangri. Til hamingju Þórhildur....

Vikan framundan

Þriðjudagur - Stóra upplestrarkeppnin hjá 7. bekk. Fimmtudagur - Leikskólinn í skólaheimsókn. Bekkjarkvöld hjá 6. og 7. bekk.  

Dagur gegn kynþáttamisrétti 21.mars

Njótum þess að vera ólík og alls konar var yfirskrift dagsins. Kynþáttamisrétti var rætt í bekkjum skólans og mikilvægi þess að koma vel fram við alla. Allir starfsmenn og nemendur fóru síðan út, tóku höndum saman og mynduðum hring kringum fótboltavöllinn til þess að sýna samstöðu.

Óveður

Skólinn er aflýst vegna veðurs.í dag föstudagur 22. mars

Vikan framundan

Mánudagur - Hjördís Ólafsdóttir kemur inn sem afleysingarkennari fyrir Selmu. Þriðjudagur - Tónlistarskólinn kemur í heimsókn í 1. - 2. bekk. Miðvikudagur - Alþjóðlegi heilbrigðisdagurinn Fimmtudagur - Dagur gegn kynþáttamisrétti  

Árshátíð Þjórsárskóla 2019

Föstudaginn 15. mars var árshátíðin okkar í Þjórsárskóla. Í ár var unnið með Jón Odd og Jón Bjarna en Halla Guðmundsdóttir skrifaði leikritið eftir bókum Guðrúnar Helgadóttur og leikstýrði. Nemendur tóku virkan þátt í undirbúningi fyrir árshátíðina. Unnið var á stöðvum við að útbúa leikmynd, leikmuni, veggmyndir og búninga. Þá...

Akstur – frestað

Þriðjudaginn 12.mars Skólaakstur frestað vegna veður, athugum seina. Skólinn byrja ekki á réttum tíma.