Skólabyrjun í haust

Um leið og við viljum þakka fyrir veturinn minnum við á að skólasetning verður mánudaginn 23. ágúst. Stefnt verður að því að fara í árlegu útileguna okkar 26. - 27. ágúst. Skóladagatal næsta árs:  https://www.thjorsarskoli.is/index.php/skoladagatal Munið eftir sumarlestrinum. Hafið það gott í sumar. Kær kveðja starfsfólk skólans.  

Stóra upplestrarkeppnin - Lokahátíðin á Flúðum 25. maí 2021 

Lokakeppni stóru upplestrarkeppninnar var haldin á Flúðum. Nemendur frá fimm skólum í  uppsveitum og  Flóa kepptu til úrslita.  Tveir piltar úr Þjórsárskóla gerðu sér lítið fyrir og hrepptu 1. og  3. sætið. Eyþór Ingi Ingvarsson hlaut fyrsta sætið og Vésteinn Loftsson það þriðja. Þetta er frábær árangur og starfsfólk Þjórsárskóla er mjög stolt af strákunum okkar.    

Vikan framundan

Þriðjudagur 18. maí - Brautarholtssund hjá 6. og 7. bekk Miðvikudagur 19. maí - Landgræðsluferð hjá 5.-7. bekk og Skólahópur leikskólans í skólanum. Fimmtudagur 20. maí -  7. bekkur á Flúðum og Skólahópur leikskólans í skólanum allan daginn. Mánudaginn 24. maí er annar í Hvítasunnu og þá er ekki skóli.

Listgreinar í skóginum

Föstudaginn 14. maí fórum við í skóginn okkar og unnum í aldursblönduðum hópum á stöðvum. Þemað þessu sinni var sköpun og verkefnin á stöðvunum voru fjölbreytt: búin voru til listaverk, stígurinn í skóginum skreyttur, búnir voru til bátar og farið var í ratleik.           

Vikan framundan

Miðvikudagur 12. maí - Skólahópur Leikholts hjá okkur fram yfir hádegismat.  Fimmtudagur 13. maí - Uppstigningardagur frí Föstudagur 14. maí - Skógarferð 

Kartöflurækt

Föstudaginn 7. maí fór 6. bekkur út í kartöflugarðinn okkar. Þau pældu hann og setti moltu úr lífrænu tunninni okkar í garðinn, gerðu stíga og nú er hann tilbúinn þannig að hægt er að setja niður kartöflur. Nemendur voru áhugasamir í þessari vinnu og unnu vel.    

Vikan framundan

Mánudagur 3. maí - Starfsdagur - Nemendur frí Þriðjudagur 4. maí - Brautarholtssund. Guðný María námsráðgjafi hér. Fimmtudagur 6. maí - Hjálmafræðsla hjá 1. - 2. bekk. Nú hefur verið send könnun á öll heimili um Heilsueflandi grunnskóla. Væri gott að fá svör fyrir helgi.  

Litla upplestrarkeppnin

21. apríl var Litla upplestrarhátíðin haldin og voru það nemendur í 4. bekk sem spreyttu sig á upplestri. Formlega hófst undirbúningstímabilið 16. nóvember en síðustu vikurnar fyrir hátíðina var allt kapp lagt í það að æfa upplesturinn sem mest. Einnig fengu þau að fylgjast með forkeppninni hjá 7. bekk 10....

Vikan framundan

Nokkuð var um viðburði sem áttu að vera í vikunni en hefur verið aflýst til öryggis vegna aukinna smita á landinu. Fimmtudagur 29. apríl - Bekkjarkvöld 3. og 4. bekkur kl. 14.30 17.00.    

Dagur einhverfunnar

Föstudaginn 9. apríl var Alþjóðlegur dagur einhverfu. Þá klæddumst við bláum fötum í skólanum til þess að sýna samstöðu þessu mikilvæga málefni.