Vikan framundan

Mánudagur 4. mars - Bolludagur. Nemendur mega hafa með sér bollu í morgunkaffi.  Þriðjudagur 5. mars - Brautarholtssund Miðvikudagur 6. mars - Hálfur skóladagur. Öskudagsskemmtun. Allir koma í búning í skólann. Heimkeyrsla kl. 12.   Föstudagur 8. mars - Undirbúningur fyrir árshátíð byrjar. Nemendur vinna á stöðvum. Ekki kennt eftir stundatöflu.  

Dagur íslenska táknmálsins

Krakkarnir í fimmta bekk hafa verið að læra táknmál hjá Selmu í vetur. Mánudaginn 11. febrúar var Dagur íslenska táknmálsins og þá var settur upp táknmálsveggur í miðrými skólans. Myndir af krökkunum að segja hin ýmsu tákn voru prentuð út og hengd upp á vegg, til sýnis fyrir alla í...

Vikan framundan

Mánudagur 18. febrúar -  Miðstigsgleði 17.30 - 19.30. Miðvikudagur 20. febrúar - Alþjóðlegur dagur félagslegs réttlætis. Fimmtudagur 21. febrúar - 7. bekkur Flúðaskóla og skólahópur Leikholts í skólanum.    

Bláfjöll

Þann 13. febrúar fórum við í Bláfjöll á skíði með alla nemendur í skólanum, 1.-7.bekk. Allir fóru á skíði, sumir í fyrsta skipti og voru því margir sigrar unnir þennan dag. Við fengum góða foreldra með okkur í ferðina og færum við þeim okkar bestu þakkir fyrir alla hjálpina.

Vikan framundan

Þriðjudagur 12. febrúar - Tónlistarskólinn kemur og heimsækir 1. og 2. bekk Miðvikudagur 13. febrúar - Skíðaferð í Bláfjöll Fimmtudagur 14. febrúar - Skólaheimsókn elstu nemenda í Leikholti

5. – 7. bekkur

Nýsköpun er hluti af smíðakennslunni í vetur.Hún byggir á því að nemendur stofna fyrirtæki, tveir eða fleiri, fá hugmynd af vöru, hanni hana, geri kostnaðaráætlun og markaðssetji. Í vor verða nemendur síðan með markað þar sem gestir fá innsýn í framkvæmdarferlið og vörurnar verða til sölu. Samhliða þessarar vinnu er...

Skáklota

Nú er lokið skáklotu sem stóð yfir í 3 vikur hjá nemendum í 1. – 7. bekk. Endaði hún á skákmóti innan kennsluhópanna. Á myndunum má sjá nemendur í fyrstu 5 sætunum í hverjum hóp. Þeir sem voru stigahæðstir fengu verðlaunagrip. Umsjón með skáklotunni hafði Lilja Loftsdóttir.

Vikan framundan

  Fimmtudagur 31. janúar - Leiklistarlota hefst. Umsjón: Halla Guðmundsdóttir.