Vel heppnuð ferð í Þjórsárdal

Vel heppnuð ferð í Þjórsárdal

Jólaferð í skóginnÍ dag fórum við í jólaferð í Þjóðskóginn í Þjórsárdal. Allir nemendur og allt starfsfólk skólans fór ásamt mörgum foreldrum og nokkrum systkinum nemenda. Farið var í leik í myrkrinu þar sem nota þurfti vasaljós til að finna stöðvar með endurskinsmerkjum. Svo var farið í samvinnu- og hlaupaleik áður en haldið var í kakó og lummur við skýlið. Eftir það fóru þeir sem vildu jólatré með Jóhannesi skógarverði og völdu sér blágreni, stafafuru eða þyn til að taka með heim. Aðrir nemendur fóru í hópum með starfsfólki skólans að sækja efni í skreytingar, föndur og smíðar til að nota á næstu vikum í skólanum. Eftir þá vinnu söfnuðust allir saman í hádegismat og borðaði hver sitt nesti. Sumir voru fljótir í mat og nýttu tímann á ísnum á ánni þar sem nemendur fundu dauðann lax undir ísnum og fór mikil orka í að reyna að nálgast hann. Lokaverkefni dagsins var að finna jólatré fyrir skólann. Áður en það var fellt söfnuðust allir saman í kringum tréð og sungu jólalög. Askasleikir mætti á staðinn og tróð sér inn í hringinn og tók þátt í gleðinni  þar til hann þurfti að fara í önnur verkefni. Þegar hópurinn hafði kvatt Askasleiki þá skiptust nemendurm á að saga tréð sem verður reist við skólann.  Veðrið lék við okkur nú sem endranær.