Útivistardagar og gistinótt í skólanum
Í fyrstu vikunni af skólanum 24. og 25.september þá voru útivistardagar í Þjórsárskóla. Á fimmtudeginum fórum við inn í skóg og unnum í aldursblönduðum hópum að fjölbreyttum verkefnum, bæði tengdum útikennslu og hópefli. M.a. var lagað hestagerðið í fangabrekku. Veðrið var dásamlegt og því var ákveðið að sulla seinnipartinn í Sandá. Þegar upp í skóla var komið borðuðum við kvöldmat, fórum í sund og grilluðum sykurpúða á eldstæðinu. Yngri nemendur gistu inni í skólanum og miðstigið svaf úti í tjöldum. Á föstudeginum voru frjálsíþróttastöðvar. Vel heppnaðir dagar í alla staði.