Upphaf skólaársins
Nú þegar skólaárið er aðeins farið af stað er ágætt að fara aðeins yfir þau verkefni sem hafa verið efst á baugi.
10. bekkur gerði strandhögg í Berglín í fyrstu viku skólans og komu til baka reynslunni ríkari. Ferðin gekk mjög vel. Kennarar hrósuðu nemendum fyrir það hvað þau voru jákvæð og kurteis sem er frábært og nemendur voru ánægðir með ferðina. Þau fengu meðal annars túr hjá Berlínunum sem er hópur íslenskra kvenna sem búa í Berlín og fer með hópa um borgina í hinar ýmsustu ferðir. Þar og í Sachsenhausen útrýmingarbúðunum fengu þau innsýn inn í söguna sem þau hafa verið að læra um undanfarin ár. En það var líka farið í rennibrautagarð og verslunarmiðstöðvar ásamt því að kynnast borginni. Við stefnum á að fá kynningu á ferðinni frá nemendum og getum vonandi boðið upp á það fyrir foreldrasamfélagið. Við þökkum þeim Höllu Siggu og Oddu fyrir að fara með hópinn í þessa ferð en það var síðast verk þeirra við skólann, alla vega í bili.
Skólinn fór svo saman í útilegu í síðustu viku. Sú ferð gekk ekki síður vel. Við fengum gott veður yfir daginn og krakkarnir fóru í gönguferðir hver með sínu stigi. Flestir hóparnir gengu um 6 km að tjaldsvæðinu sem verður nú bara að teljast nokkuð gott, sérstaklega fyrir þau yngstu. En þau fengu fræðslu á leiðinni og týndu ber í stórum stíl. Um kvöldið var sögustund og kvöldkaffi eftir matinn og svo var skriðið ofan í poka. Það fraus hressilega á okkur um nóttina svo að einhverjir sváfu ekki eins vel og við vorum að vona og við þurfum að skoða betur búnaðinn fyrir næstu útilegu. Það er tilvalið að huga að þessu um jólin ef einhverja vantar góða gjafahugmynd. Ullarnærföt og góður svefnpoki gerir ansi mikið þegar það kólnar. En nemendur og starfsfólk stóð sig vel og leysti vel úr þessu öllu saman og þau standa stærri fyrir vikið. Það er líka mikilvægt að ræða svona verkefni þannig heima. Gera mikið úr þessu afreki og ræða hvað við getum gert til að láta okkur líða betur í framtíðinni þegar við þurfum að takast á við svona áskoranir.
En skólastarfið fer vel af stað. Kennarar og nemendur eru að finna taktinn. Mörg með nýjum kennara eða nýjum nemendahóp (þó þau þekkist nú flest). Nýja mötuneytið er líka komið í gagnið en við erum enn að máta okkur við það rými. Við erum þó öll mjög ánægð með matinn og hlökkum til að þróa þetta með nýju starfsfólki. Það bætist stöðugt í búnað í mötuneytinu og allir hafa sýnt því mikla þolinmæði að við erum að slípa þetta allt saman.
Iðnaðarmennirnir okkar vinna svo hörðum höndum að því að ljúka við aðstöðuna í íþróttahúsinu sem við vonumst til að geta tekið í fulla notkun um næstu mánaðarmót. Sama má segja um tengiganginn sem er í smíðum en við vonumst til að koma honum í gagnið sem fyrst. Allt eru þetta stór skref sem við erum að stíga í húsnæðismálunum.
Verknámshúsið var klárað í sumar en þá var heimilisfræðistofa og myndmenntar og textílstofan dúklögð ásamt því að gólfið í smíðastofunni var lakkað. Þar er því allt komið í það horf sem stefnt var að.
Við erum þó enn að leita að Textílkennara til að bæta í starfsmannahópinn. Við höfum gert ráðstafanir innan starfsmannahópsins til að geta kennt textíl en værum mjög glöð að heyra í áhugasömum aðilum sem vilja koma og vera með okkur í þessu verkefni í vetur. Jafnvel þó viðkomandi tæki aðeins hluta af verkefninu. Endilega hafið samband eða bendið fólki á að heyra í undirrituðum.
Ég minni svo á mikilvægt hlutverk foreldra í þessu menntunarverkefni. Okkur langar gjarnan að sjá öflugt foreldrafélag og hvetjum alla foreldra til að gefa þessu tíma og áhuga. Við þurfum einnig að fá foreldra í Skólaráðið en þar er fulltrúi foreldra sem var orðin starfsmaður og þarf því að manna það.
Þá hvet ég foreldra til að kynna sér vel skóladagatalið. Setja jafnvel inn í sín eigin dagatöl helstu dagsetningar s.s. stafsdaga, frí og skerta daga.
Eins og ég sagði í setningarræðunni þá búum við að frábærum mannauði hérna í sveitarfélaginu, bæði hjá nemendum, starfsfólki og foreldrum og höfum öll tækifæri til að halda áfram að byggja upp skóla sem við getum áfram verið mjög stollt af.
Með von um áframhaldandi frábært samstarf,
Guðmundur Finnbogason
Skólastjóri Þjórsárskóla
