Þjórsárskóli innleiðir kennsluhætti Íslenskuskólans
Kennarar frá Þjórsárskóla hafa sótt námskeið um kennsluhætti Íslenskuskólans og hafið innleiðingu þeirra í skólanum. Markmiðið er að efla markvissa orðaforðakennslu í íslensku fyrir nemendur sem læra íslensku sem annað tungumál.
Íslenskuskólinn afhenti Þjórsárskóla sérstaka Íslenskuskólamöppu sem inniheldur myndræn orðaforðaspjöld, fjölbreytt kennsluefni og leiðbeiningar fyrir kennara. Efnið styður við orðaforðakennslu þar sem lögð er áhersla á endurtekningu orða, samræður, málfræði, ritun og virkni nemenda til að festa orðaforða í minni. Markmiðið með Íslenskuskólanum er að nemendur bæti námsárangur sinn í öðrum námsgreinum með auknum orðaforða.
Innleiðingin felur í sér námskeið í notkun verfærisins. Bæði sérkennarar og almennir kennarar á yngstastigi sóttu námskeiðið og eru að nota tækið með sínum nemendum.
Með innleiðingunni tekur Þjórsárskóli mikilvægt skref í að styrkja íslenskukunnáttu barna með íslensku sem annað tungumál.
Íslenskuskólinn hefur hlotið verðskuldaða athygli en það má lesa meira um verkefnið hérna: Íslenskuskólinn | Hagnýt orðaforðakennsla

