Stóra upplestrarkeppnin

Stóra upplestrarkeppnin

Fimmtudaginn 27.apríl var Stóra upplestrarkeppnin, sem að þessu sinni var haldin í Árnesi. Keppendur voru 9 talsins frá þremur grunnskólum. Okkar nemendur í Þjórsárskóla stóðu sig frábærlega vel og hnepptu öll verðlaunasætin. Eftir spennandi og jafna keppni varð Bergur Tjörvi í fyrsta sæti, Ásdís María í öðru og Snorri í þriðja. Íslenskukennarinn þeirra í vetur er Karen Kristjana.