Skólasetning og skóladagatal
Kæru foreldrar og nemendur
Skólasetning verður með hefðbundnum hætti þann 21. ágúst (föstudag) klukkan 11:00 í Árnesi.
Þangað mæta allir nemendur með foreldrum sínum. Foreldrum og nemendum er boðið að ganga yfir í skólann að setningu lokinni og ræða við kennara.
Hér má finna skóladagatal skólaársins. Skóladagatal-Drög-2026-2027_lokaútgáfa-apríl 2026
Dagatalið er með hefðbundnu sniði. Vakin er athygli á því að útielga verður hjá öllum skólanum annað hvort þann 27. ágúst eða þann 3. september. tilkynnt verður um dagsetningu á skólasetningunni.
10. bekkur fer í skólaferðalag til Berlínar þann 25. ágúst (farið aðfararnótt af stað) og kemur heim þann 31. ágúst.
Frí er í skólanum vegna rétta þann 11. september.
Mikilævgt er að foreldrar og forráðamenn kynni sér skóladagatalið vel.
Einnig er vakin athygli á því að skólavist verður í boði fyrir yngstastig þriðjudaga – fimmtudaga frá klukkan 13:25-14:45 þegar skólabílar fara heim. Ekki þarf að skrá nemendur í skólavist.
Frístund er í boði mánudag-fimmtudag eftir að skólabílar fara til klukkan 16:00. Greitt er fyrir þessa þjónsutu en reglur um þjónustuna má finna hér: Skólavistun og frístund
Skrá þarf nemendur í frístund samkvæmt reglum en hún er ekki í boði nema þrír nemendur séu skráðir í hana.
Þá er athygli vakin á því að upplýsingar um skólaakstur, leiðir og bílstjóra koma inn á heimsíðuna von bráðar og verða þá aðgengilegar hér: Skólaakstur – Þjórsárskóli
