Skákkennsla í Þjórsárskóla
Mánudaginn 5. október kom Stefán Bergsson verkefnisstjóri þróunarverkefnis í skák til okkar og hóf kennslu í skák. Allir nemendur í 1.-4. bekk fengu kennslu í skák fyrir hádegi. Stefán fór yfir heiti taflmanna, mannganginn og skákborðið sjálft. Eftir það tefldu nemendur peðaskák. Peðaskák er góð æfing fyrir nemendur. Peðunum er stillt upp á aðra og sjöundu reitarröð eins og í hefðbundinni skák. Svo áttu nemendur að reyna að koma peðunum sínum upp í borðið hjá andstæðingnum sínum eða ná að drepa öll peðin. Nemendur tefldu einnig með hrók á móti 5 peðum. Hafdís mun síðan halda áfram að kenna skák einu sinni í viku. Nemendur voru mjög áhugasamir og hrósaði Stefán þeim fyrir hversu vel þeir voru að sér í skák. Aðstaða okkar í skólanum er góð. Við eigum nóg af góðum taflborðum og klukkum. Við munum nýta okkur hluta af peningastyrk sem við fengum til að kaupa sýningartaflborð.