náttfatadagur

Náttfatadagur

Þann 23 janúar var náttfatadagur hér í skólanum.  Nemendur mættu í náttfötum og skemmtu sér vel.  Hefðbundin kennsla var í skólanum en óneitanlega myndaðist öðruvísi stemning.  Þetta var hugmynd sem kom frá nemendafélaginu og gaman var að verða við þessari beiðni þeirra. Kennarar tóku einnig þátt í þessari uppákomu.