Skólaslit

Föstudaginn 31. maí voru skólaslit í Þjórsárskóla. Þá var sýning á verkum nemenda í Árnesi, afhentur var vitnisburður, sundbikarar og að auki verðlaun fyrir háttvísi – góða félagslega færni. Þá voru 6 nemendur í 7. bekk kvaddir sem halda nú áfram skólagöngu sinni í Flúðaskóla.

Nú förum við út í sumarið með sól í hjarta. Hafið það gott í sumar. 

  

Skólasetning verður síðan miðvikudaginn 21. ágúst.