Fréttir úr skólastarfinu
Fréttir úr skólastarfinu – Október 2026
Óveður
Miðvikudaginn 14. október var skólabyrjun færð til kl. 10 vegna óveðurs, þar sem mesta veðurhæðin var spáð á þeim tíma sem skólabílar eru á ferð. Foreldrar fengu viðvörun daginn áður. Spáin gekk eftir og þegar nemendur mættu kl. 10 hafði veðrið gengið að mestu niður. Brugðist var við samkvæmt óveðursáætlun skólans en hana má finna hérna á heimasíðunni.
Kennaraþing
Kennarar skólans sóttu árlegt kennaraþing Kennarafélags Suðurlands í október. Þar var meðal annars fjallað um útinám og nýtt stafrænt kennsluefni.
Smiðjudagar
Fyrstu smiðjudagar vetrarins voru í lok september. Miðstigið heimsótti Bláskógaskóla á Laugarvatni og unglingastigið sótti smiðjur í Flúðaskóla, þar sem í boði var allt frá flúðasiglingum og mótorkrossi til matreiðslu og textíls. Nemendur okkar voru til fyrirmyndar.
Nýja íþróttahúsið
Fyrstu íþróttatímarnir í nýja íþróttahúsinu voru þann 2. nóvember en nemendur komu saman daginn áður í salnum og fögnuðu því að húsið væri komið í notkun.
Lotuskil
Fyrstu lotuskil skólaársins voru 5. október. Margir kennarar nýttu tækifærið til að hringja í foreldra og fara yfir stöðuna. Markmiðið er að halda góðu sambandi við heimilin jafnt og þétt yfir veturinn.
Samstarf skóla í Uppsveitum og Flóa
Starfsfólk skólanna í Uppsveitum og Flóa hittist í Flóaskóla til að bera saman bækur sínar og stór hópur frá okkur mætti. Að því loknu var boðið upp á pítsu í Vatnsholti.
Samstarf við Leikholt
Samstarf skólahóps Leikholts og yngsta stigs er hafið. Fyrsti bekkur fór í heimsókn 22. október og stefnt er á tvær heimsóknir fyrir áramót og fleiri eftir áramót.
Miðstigð heimsótti Listasafn Árnessinga
Miðstigið okkar heimsótti Listasafn Árnesinga í tengslum við verkefnið List fyrir alla. Heimsóknin var alveg frábær en nemendur fengu bæði fræðslu og að prófa að skapa sín eigin listaverk.
Fræðsludagur fyrir foreldra
Haldinn var skemmtilegur fræðsludagur fyrir foreldara þann 27. október. Foreldrum var boðið í ratleik um skólann þar sem þeir fengu að kynnast mjög fjölbreyttu starfi í skólanum á öllum stigum. Eftir kynnignarnar var þeim boðið að sjá íþróttahúsið. Því næst var haldin fundur foreldrafélagsins sem var fyrir vikið afar vel sóttur. Góðar umræður sköpuðust og foreldrar voru spenntir fyrir starfi félagsins og þeim möguleikum sem að sterkt foreldrafélag býður uppá.
Þessa dagana er svo unnið að undirbúning þemadaga
Þemað er Harry Potter en foreldrum og öðrum gestum verða boðnir í skólann í næstu viku til að sjá afrakstur verkefnanna.
