Fögnum fjölbreytileikanum – Blár dagur

Blár apríl er árlegt vitundarátak Styrktarfélags barna með einhverfu. Blár er alþjóðlegur litur einhverfu. Rétt eins og blæbrigði litarins eru birtingarmyndir einhverfu óteljandi því hver einstaklingur hefur sinn stað á rófinu með öllum þeim áskorunum sem fylgja einhverfu.

Við í Þjórsárskóla tókum þátt í átakinu og allir mættu í einhverju bláu föstudaginn 10. apríl.2