Dagur íslenskrar tungu

Dagur íslenskrar tungu

Á degi íslenskrar tungu, þann 16.nóvember voru við með hátíð fyrir aðstandendur og gesti í Árnesi.

Nemendur sýndu dansa, afrakstur vetrarins úr danstímum hjá Silju. Þá fengum við Grænfánann afhentan í 10. skiptið, Sigurlaug frá Landvernd kom og afhenti okkur hann.

Þá sungu nemendur, fóru með ljóð og lásu Draugasögur sem þau voru búin að æfa í íslenskutímum.