Auglýsing um starf

Kennsla og deildarstjórn á mið- og elstastigi við Þjórsárskóla Auglýst er eftir kennarar á unglingastigi með deildarstjórn í 80-100% starf. Miðað er við ca 60-70% kennslu á móti deildarstjórn. Sérstaklega er leitað eftir kennara sem er vanur að kenna á þessum stigum. Þjórsárskóli er heildstæður skóli með um 65-70 nemendur...

Smiðjudagar

Nú var Þjórsárskóli að taka þátt í smiðjudögum í þriðja skipti þar sem að dagarnir eru fyrir unglingastigið. Að þessu sinni fóru smiðjudagar fram að Flúðum þar sem boðið var upp á fjölbreytt úrval sem að nemendur gátu valið úr. Dagarnir virka þannig að nemendur fá að velja sér smiðjur...

Upphaf skólaársins

Nú þegar skólaárið er aðeins farið af stað er ágætt að fara aðeins yfir þau verkefni sem hafa verið efst á baugi. 10. bekkur gerði strandhögg í Berglín í fyrstu viku skólans og komu til baka reynslunni ríkari. Ferðin gekk mjög vel. Kennarar hrósuðu nemendum fyrir það hvað þau voru...

Skólasetning og skóladagatal

Kæru foreldrar og nemendur Skólasetning verður með hefðbundnum hætti þann 21. ágúst (föstudag) klukkan 11:00 í Árnesi. Þangað mæta allir nemendur með foreldrum sínum. Foreldrum og nemendum er boðið að ganga yfir í skólann að setningu lokinni og ræða við kennara. Hér má finna skóladagatal skólaársins. Skóladagatal-Drög-2026-2027_lokaútgáfa-apríl 2026 Dagatalið er...

Vordagar og skólaslit

Þegar síðasta vikan hefst er ekki úr vegi að minna aðeins á dagskránna. Yngstastig: 1. júní - Skógarferð 2. júní - vorferð Til Stokkseyrar 3. júní - Fjallganga á Stöðulfell Miðstig: 1. júní - Fjallganga á Vörðufell 2. júní - Ferð til RVK 3. júní - Vorferð til Þorlákshafnar Elsta...

Skóladagatal fyrir 2026-2027

Skóladagatal fyrir næsta skólaár var samþykkt á skólanefndarfundi í mars. Dagatalið verður því svona að öllu óbreyttu. Athygli er vakin á því að tvær dagsetningar eru í boði fyrir útileguna að hausti en aðeins önnur verður fyrir valinu. Við viljum hafa möguleika til að breyta ef að veður verður ekki...

Skólahald fellur niður vegna veðurs

Gefin hefur verið út appelsínugul veður viðvörun með miklum vindi og úrkomu á morgun, fimmtudaginn 26. mars. Við höfum því ákveðið að fella niður skólahald á morgun fimmtudag. Þetta er gert meðal annars vegna þess að nær allir nemendur skólans koma með skólabíl og ekki er forsvarandlegt að senda þá...

Uppfærðar reglur um Frístund

Sveitarstjórn tók fyrir og uppfærði reglur um Frístund við Þjórsárskóla á síðasta fundi sínum þann 4. febrúar. Helsta breytingin þar snýr að því að nú er lágmarksþátttaka í Frístund 3 nemendur til þess að hún sé starfrækt. Hægt er að kynna sér þessar reglur hérna á heimsíðunni okkar eða með...

Gleðilegt nýtt ár

Skólastarfið fer vel af stað í dag þann 5. janúar. Starfið verður með hefðbundnum hætti í janúar. Skólaakstur verður með hefðbundnum hætti. Við vonum að öll hafi átt ánægjulegar hátíðir og notið þess að vera í fríi með fjölskyldu og vinum. Starfsfólk Þjórsárskóla

Góð gjöf frá Kvenfélögunum okkar

Kvenfélögin í Skeiða- og Gnúpverjahreppi styrkja ungmenni með gjöf á upptökubúnaði Kvenfélag Skeiðahrepps og Kvenfélag Gnúpverja hafa sameinast um að styrkja félagsmiðstöðina Ztart og Þjórsárskóla með veglegri gjöf sem felur í sér hljóðupptökubúnað, myndbandsupptökuvél og viðeigandi búnað að andvirði 360.000. Gjöfin er liður í því að efla skapandi starf barna...