Smiðjudagar

Smiðjudagar

Nú var Þjórsárskóli að taka þátt í smiðjudögum í þriðja skipti þar sem að dagarnir eru fyrir unglingastigið. Að þessu sinni fóru smiðjudagar fram að Flúðum þar sem boðið var upp á fjölbreytt úrval sem að nemendur gátu valið úr. Dagarnir virka þannig að nemendur fá að velja sér smiðjur sem að þeir sækja á fimmtudegi og föstudegi. Hægt var að velja á milli textílsmiðju, hestasmiðju, riverrafting, motorkross, golfsmiðju og matarsmiðju svo eitthvað sé nefnt. Að sjálfsögðu stóðu nemendur Þjórsárskóla sig með prýði eins og alltaf.

Á sama tíma fór miðstigið í smiðjudag (á fimmtudeginum) í Bláskógaskóla á Laugarvatni. Þar hittu þau nemendur úr hinum uppsveitaskólunum og Flóaskóla eins og undanfarin ár. Smiðjudagurinn er bæði uppbrot og tækifæri til að hitta aðra nemendur og læra að vera í smiðjum fyrir unglingastigið. Dagurinn heppnaðist vel og nemendur komu þreytir en sælir til baka.

Næsta smiðja verður hjá Unglingstiginu í byrjun nóvember en þá er stefnt á svokallaða menningarferð til Reykjavíkur þar sem fara á í leikhús.

Þjórsárskóli fær svo að halda smiðju í lok skólaársins. Þá tökum við á móti hinum ríflega 100 nemendunum til okkar.