Öskudagur

Öskudagur

Á öskudaginn mættu nemendur og starfsfólk klætt skrautlegum búningum í skólann. Kl. 10.30 byrjaði síðan ball í Árnesi undir stjórn Jóns Bjarnasonar. Það var mikið fjör og allir tóku þátt í skemmtilegum leikjum og dansi.  Þá var kötturinn sleginn úr tunnunni, en nemendur höfðu sjálfir tekið þátt í að útbúa og skreyta tunnurnar. 

Foreldrafélagið sá síðan til þess að allir fengu gotterí og ávaxtasafa. Þetta var litríkur og skemmtilegur dagur sem allir tóku þátt í.