Síðustu dagar fyrir jól
Síðustu dagar hafa verið fjölbreyttir og mikið um uppbrot og skemmtilegheit. Jólahringekja var síðasta miðvikudag en þar unnu nemendur unnu í aldursblönduðum stöðvum þar sem áhersla var á sköpun og gleði. Kirkjurnar á Stóra – Núpi og Ólafsvöllum voru heimsóttar á fimmtudaginn, Tónlistarskóli Árnesinga var með uppákomur og alla dagana voru kennslustundir í jólabúningi.
Starfsfólk Þjórsárskóla óskar ykkur gleðilegrar jólahátíðar.
Fyrsti skóladagur eftir jólafrí er föstudagurinn 4. janúar.