Vistheimtsferð á Skaftholtsfjall
5.6.og 7. bekkur fóru ásamt kennurum sínum Bolette og Hafdísi upp á Skaftholtsfjall fimmtudaginn 12 maí. Tilgangur ferðarinnar var að lagfæra tilraunareitina okkar og bera skít á ákveðna reiti. Í fjallinu hittu okkur fulltrúar Landverndar og Landgræðslu. Nemendur gengu frá skólanum og veðrið lék við okkur. Við byrjuðum á því að nemendum var skipt í hópa. Hóparnir settu nýtt band umhverfis hvern reit og ný flögg og svo nýjar spýtur ef þær gömlu voru orðnar lúnar. Síðan var skít dreift á ákveðna tilraunareiti. Nemendur voru röggsamir og vinnan gekk fljótt og vel fyrir sig.