Skákfréttir
Í gær var skákdagurinn haldinn um land allt. Dagurinn er tileinkaður Friðriki Ólafssyni , fyrsta stórmeistara Íslendinga í skák. Þjórsárskóli tók þátt í þessum viðburði og héldum við skákmót hér í skólanum. Nemendum skólans var skipt í tvo hópa, eldri og yngri. Teflt var á 8 borðum í eldri deild og 12 borðum í yngri deild. Mikil spenna myndaðist þegar að síðustu einvígin voru háð. Í eldri deild vann Þrándur Ingvarsson og í yngri deild vann Magnús Arngrímur Sigurðsson. Óskum við þeim til hamingju með skákmeistaratitlana.