Blár apríl er árlegt vitundarátak Styrktarfélags barna með einhverfu. Blár er alþjóðlegur litur einhverfu. Rétt eins og blæbrigði litarins eru birtingarmyndir einhverfu óteljandi því hver einstaklingur hefur sinn stað á rófinu með öllum þeim áskorunum sem fylgja einhverfu.
Við í Þjórsárskóla tókum þátt í átakinu og allir mættu í einhverju bláu föstudaginn 10. apríl.