Lestur
Þjórsárskóli tekur þátt í landsleik í lestri. Við höfum skráð öll börn skólans sem og starfsmenn til leiks. Landsleikurinn gengur út á það að lesa daglega. Það eru ekki skráðar bls. sem við lesum heldur verður tíminn sem fer í það að lesa skráður. Við skráum hvaða bækur börnin eru að lesa og höldum utan um skráninguna. Við hvetjum ykkur til að hjálpa börnunum og okkur í þessari keppni. Allar nánari upplýsingar um landsleikinn er inn á síðunni: http://www.allirlesa.is/