Árshátíð 2013
Árshátíðin á föstudaginn markaði upphaf afmælishátíðar skólans. Sýnt var leikritið: Í fylgd með H.C. Andersen auk þess sem verkefni tengd sögu skólanna prýddu salinn. Nemendur fengu góðar undirtektir áhorfenda og stóðu sig frábærlega bæði í leik og söng. Eftir sýninguna fengum við fínt veislukaffi í umsjón foreldrafélagsins. Myndir væntanlegar inn á heimasíðuna næstu daga.