Nýtt landgræðsluverkefni
Þjórsárskóla hefur verið boðið að taka þátt í verkefni með Landvernd og Landgræðslu ríkisins. Verkefni ber heitið „Fræðsla ungmenna og vistheimt á örfoka landi á Suðurlandi“. Þremur skólum er boðið að vera með. Þetta er Hvolsskóli, Grunnskólinn á Hellu ásamt okkur. Þessir skólar voru valdir þar sem þeir eru allir grænfánaskólar. Verkefnið fjallar um gróður- og jarðvegseyðingu, tap á líffræðilegri fjölbreytni og loftslagsbreytingar. Þetta á að vera langtíma verkefni og standa yfir u.þ.b. tíu – fimmtán ár. Það er gaman og spennandi fyrir okkur að vera þátttakendur í þessu verkefni þar sem það getur orðið skemmtileg viðbót við það landgræðslustarf sem fyrir er í skólanum.