Innkaupalisti
Innkaupalisti fyrir 1. – 4. bekk haustið 2012
Það reynist mörgum erfitt að halda utan um dótið sitt í skólanum og oft fer mikill tími í að leita að blýanti og strokleðri. Þetta truflar kennslu alltof oft. Því viljum við benda á að nauðsynlegt er að vera með gott pennaveski þar sem hver hlutur á sinn stað. Það sem þarf að vera í pennaveskinu á hverjum einasta degi er eftirfarandi: blýantar, gott strokleður, yddari, reglustika og trélitir. Auk þess þurfa allir að hafa límstifti og skæri. Allt þetta þarf að vera rækilega merkt.
Annað sem þarf að vera til staðar:
2 stílabækur, stærð A4 (ekki gorma)
1 reikningshefti, stærð A4 (ekki gorma og ekki of litlar rúður)
1 plastmappa fyrir götuð blöð
Harðspjaldamappa fyrir götuð blöð, stærð A4.
3. og 4. bekkur þarf að hafa 2 venjulegar (A5) stílabækur
1. og 2. bekkur : Sögubókin mín, stærð A4
Við vekjum athygli á því að margir nemendur eiga lítið nýttar stílabækur og reikningshefti og að sjálfsögðu má nýta slíkt áfram.
Innkaupalisti fyrir 5.-7. bekk
Harðspjaldamappa – þynnri gerð með 4 götum
1 teygjumappa
2-3 plastmöppur
1 A4 gormastílabók
2 A5 stílabækur
1 A4 reikningshefti með litlum rúðum
Nýtið eldri bækur sem ekki eru fullskrifaðar og möppur sem þið eigið frá því í fyrra, til dæmis Vandamála möppurnar.
Gott er að kaupa einlitar og ódýrar stilabækur .
Í pennaveski þarf að vera:
Blýantar, strokleður, reglustika, gráðubogi, penni, yddari, trélitir og vasareiknir með kvaðrarót (?) og prósentur(%)