Landgræðsludagur 5.-7. bekkur
Fimmtudaginn 3. maí gengum við úr skólanum og upp á Skaftholtsfjall þar sem Sigþrúður hitti okkur og ræddi við okkur um uppgræðslu og sáningu. Við skoðuðum reitina okkar og skráðum hjá okkur breytingarnar á þeim síðan í haust. Síðan bárum við á og sáðum á nýtt svæði. Sigþrúður lét okkur einnig ganga um og þjappa jarðveginn, þar sem við höfðum sáð. Skólabílarnir sóttu okkur við lok dags og keyrðu okkur aftur í skólann.