Víkingaþema hjá yngstu
Föstudaginn 5. nóvember lauk víkingaþema í 1. og 2. bekk sem hófst 28. október síðastliðinn. Á þessum stutta tíma afrekuðu nemendur margt, þ.á.m. að mála stóra mynd af torfbæ, búa til torfbæ, teikna mynd af langskipi, teikna Stöng eins og hún leit út þegar Gaukur bjó á Stöng og einnig var teiknuð mynd af ás eða ásynju úr goðafræðinni. Að lokum voru litlir skinnskór saumaðir og víkingabrauð bakað úti á eldstæðinu okkar. Í lok þemans héldum við sýningu fyrir foreldra og systkini nemenda sem eru hér í skólanum. Hún heppnaðist vel og erum við öll, nemendur og kennarar, mjög stolt af því verkefni sem unnið var um víkinga og landnámsöld.