Undirbúningur árshátíðar
Nú er undirbúningur árshátíðar í fullum gangi. Sýning á Ronju ræningjadóttur verður föstudaginn 12. mars kl. 20:00 og er aðgangseyrir 1.000 kr fyrir fullorðna sem rennur til foreldrafélagsins. Fyrir utan að krakkarnir æfa leikrit um Ronju ræningjadóttur, þá eru búnar til grímur, leikmynd, búningar myndverk og leikskrá. Það er mikið líf og fjör um allan skóla og krakkarnir vinna vel. Söngvar um Ronju og líf hennar í Matthíasarskógi hljóma um allan skóla. Eftir leiksýninguna á föstudag er kaffihlaðborð í boði foreldra.