100 ára afmæli Stóra-Núpskirkju
Haldið verður upp á 100 ára afmæli Stóra-Núpskirkju þann 1. nóv. n.k. Hátíðin hefst með messu í kirkjunni kl. 14 Vegna þessa mun séra Axel sóknarprestur koma í skólann þriðjudaginn 27. okt. og ræða við nemendur um kirkjur prestakallsins, sóknir þess og afmælishátíðina sem framundan er. Að lokinni messunni þann 1. nóv. verður hátíðinni fram haldið í Árnesi kl. 15 þar sem skólakór Þjórsárskóla skipaður nemendum 4.-7. bekkjar syngur undir stjórn Stefáns Þorleifssonar.