Grænn dagur í skólanum
Í dag var grænn dagur í skólanum. Nemendur og starfsmenn komu í grænum fatnaði, skreyttu sig með grænu og umhverfisnefnd skreytti skólann með grænu skrauti víða. Yngstu nemendurnir fóru líka í dag og merktu sér plöntur og leituðu og fundu sígrænt barrtré alveg í anda dagsins. Það er alltaf gaman að fá ,,öðruvísi“ daga til að krydda tilveruna. Þetta var svoleiðis dagur í Þjórsárskóla.