Breytingar á skólastarfi

Breytingar á skólastarfi

Vegna aðstæðna í samfélaginu og samkomubanns getur skólastarfið ekki verið með sama hætti og áður. Við höfum sett niður skipulag fyrir vikuna og verður helmingur nemenda í skólanum í einu. 

Þriðjudagur:

Nemendur verða í skólanum frá þessum bæjum/stöðum:

Ásólfstaðir, Hagi, Ásar, Laxárdalur, Steinsholt, Glóruhlið, Árneshverfi, Bjarkarlaut, Knarraholt, Hæll, Þrándarholt og Þrándarlundur

Miðvikudagur:

Nemendur verða í skólanum frá þessum bæjum/stöðium:

Brautarholt, Húsatóftir, Hlemmiskeið, Hraunbrún, Birnustaðir,Fjall,Skarð og Sandlækjakot.

Fimmtudagur: eins og þriðjudagur nema allir nemendur heim kl 12:00

Föstudagur: eins og miðvikudagur, allir nemendur heim kl 12:30

Stundataflan breytist. Við megum ekki kenna sund, íþróttir, smíði, textíl, heimilisfræði, tónmennt og myndmennt. Í staðinn erum við búin að búa til nýja stundatöflu. Nemendum verður kennt í tveimur hópum yngri og eldri og verður þeim haldið aðskildum yfir daginn. Þá verða t.d. frímínútur og hádegismatur ekki á sama tíma.

Mikilvægt:

  • Nemendur þurfa að koma með pennaveski, blýant, stokleður og tréliti.
  • Nemendur þurfa að hafa með sér nesti, þar sem ekki verður boðið upp á morgunmat. Nestið borða nemendur í stofunni sinni.
  • Ef nemendur eru slappir eða með kvef eða flensueinkenni eiga þeir að vera heima.
  • Skólabílar keyra nemendur heim við lok skóladags. Ekki er hægt að fara heim með öðrum.
  • Foreldrar mega ekki koma inn í skólabygginguna á meðan á samkomubanni stendur.

Þá bendum við ykkur á eftirfarandi síður fyrir frekari upplýsingar

Landlæknir: Vefslóð: https://www.landlaeknir.is/

Upplýsingasíða um Covid: Vefslóð: https://www.covid.is/