Dagur íslenskrar tungu

16/11'15

Við héldum Dag íslenskrar tungu hátíðlegan mánudaginn 16. nóvember. Að þessu sinni var dagurinn helgaður 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna.

3.- 4. bekkur flutti dagskrá um stöðu kvenna á fyrri árum og sögðu frá kvikmyndinni Næturgangan eftir Svövu Jakobsdóttur þar sem vinnukona gerir uppreisn gegn kynjamisrétti.

5.- 7. bekkur tók fyrir ljóð eftir konur í tilefni af 100 ára kosningarétti kvenna.  Þau völdu sjálf ljóðin og fluttu þau.  Einnig var 7. bekkur með tilvísun í ævi Ólínu Jónasdóttur  og sögðu frá hjásetu og leikjum sem börn léku sér í hér áður fyrr.

Börnin í skólanum sungu lög um konur og eftir konur undir stjórn Helgu Kolbeins.

Nemendur voru mjög áhugasamir og stóðu sig með prýði.