Vorferð í skóginn
Þann 22. maí fórum við inn í skóginn okkar. Markmiðin með þessari ferð voru:
Að nemendur :
- Geri sér grein fyrir mikilvægi hreyfingar í daglegu lífi og taki þátt í skólahlaupi
- Nýti náttúruna til afþreyingar
- Komi með réttan útbúnað og viðeigandi klæðnað
Nemendur byrjuðu á því að taka þátt í skólahlaupinu og hlupu mislangar vegalengdir eftir aldri. Eftir hlaupið fengu allir að sulla í Sandá í góða veðrinu.