Vikan framundan

Vikan framundan

Nú er árshátíðarvikan gengin í garð. Stundataflan er lögð til hliðar og unnið er að undirbúningi í aldursskiptum hópum. Nú erum við að vinna að sviðsmynd, leikmunun, myndum í sal og búningum, auk þess sem verið er að æfa leik og söng.  Ekki þarf að koma með skólatöskur en mikilvægt er að nemendur séu klæddir eftir veðri þar sem farið er í frímínútur.