unglingastig – uppskeruhátíð

unglingastig - uppskeruhátíð

Þriðjudaginn 20. maí hélt unglingastigið uppskeruhátíð verkgreina með forsvarsmönnum tveggja fyrirtækja sem þau hafa heimsótt á vorönn. Þetta voru hjónin Petrína og Björgvin í Korngrís og Odda frá Reykás. Nemendur kynntu þeim verkefni úr heimsóknunum þar sem fram kom hvað þau höfðu lært í heimsókninni og um upplifun þeirra af starfi þar. Að lokum enduðu nemendur á að grilla Porkara frá Korngrís og meðlæti var grænmeti frá Reykás sem allir borðuðu saman við skólann í blíðunni.