Reykir í Hrútafirði
Ferð 6. og 7. bekkjar að Reykjum tókst mjög vel. Nemendur tóku virkan þátt í öllu því sem var í boði og voru mjög duglegir. Allir voru kurteisir og fóru eftir fyrirmælum. Þau unnu hárgreiðslukeppnina með glæsibrag. Matthías var módelið og meistararnir sem greiddu voru Aníta, Díana og Sigríður Lára. Guðmundur og Ísak komust einnig í úrslit.
Við þökkum fyrir skemmtilega samveru þessa viku.
Kjartan og Hrafnhildur