Nýsköpunarkeppni 2016
Grunnskólanemendum landsins stendur árlega til boða að taka þátt í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna. Tveir nemendur Þjórsárskóla náðu þeim glæsilega árangri að komast í úrslit keppninni að þessu sinni. Það voru þær Kristín Huld Stefánsdóttir og Þorbjörg Guðrún Kristófersdóttir.
Hugmynd stelpnanna var hnífastandur og var hún ein af 27
sem valin var úr hópi 1750 umsókna.
Frábært, til hamingju stelpur!