Jólavikan
Þessa síðustu viku fyrir jól hefur margt verið í gangi hjá okkur í skólanum. Á mánudag voru nemendur að útbúa og skrifa jólakort til skólafélaga sinna. Næsta dag var rauður dagur í skólanum og þá var jólaþema. Nemendum var skipt í þrjá hópa og fór á þrjár föndurstöðvar þar sem unnin voru jólaverk. Stöðvarnar voru með efnivið úr tré, pappír og almennu efni. Afraksturinn var af ýmsum toga, skemmtilegar og mismunandi útfærslur eftir hópum. Á miðvikudag buðu nemendur upp á heitt kakó með rjóma og smákökur sem þau höfðu bakað dagana á undan í heimilisfræði. Allir komu saman á sal og nutu veitinganna. Á fimmtudag var jólamatur í mötuneytinu þar sem nemendur og starfsmenn borðuðu saman í flísasalnum í Árnesi. Í dag er samveurstund með umsjónakennurum og jólaball í salnum okkar. Skóla lýkur kl. 11,30 og við höldum í jólafrí til 4. janúar.
Gleðilieg jól og þakka ykkur öllum fyrir skemmtilegt og gefandi ár. Megi næsta ár færa okkur ný tækifæri og nýjar uppgötvanir.