Frábærar gjafir
Undanfarið hefur skólanum borist nokkrar gjafir. Í vikunni barst skólanum iðnaðarryksuga í smíðastofuna frá Hákoni Páli í Selásbyggingum og Dynjanda. Önnur gjöfin var hjólagrind til að hjólafólk hafi stað fyrir hjólin sín fyrir utan skólann og það voru Hákon Páll í Selásbyggingum og Bjarni Sverrisson sem gáfu okkur hana. Með þessum gjöfum fylgdi blómvöndur og kort.
Í síðustu viku komu fulltrúar frá Björgunarsveitinni Sigurgeir og gáfu öllum nemendum og starfsfólki endurskinsmerki. Þetta eru allt frábærar gjafir sem nýtast vel í skólastarfinu. Kærar þakkir að hugsa svona vel til okkar.