Framundan

Um leið og við óskum ykkur gleðilegs árs þá er gaman að segja frá því að tveir nýjir nemendur byrjuðu í skólanum nú eftir áramótin. Það eru systur sem fara í 2. og 3.bekk. Við bjóðum þær hjartanlega velkomnar. Framundan eru foreldraviðtöl 15.janúar og síðan stefnum við að því að...

Aðdragandi jóla

Það er margs konar uppbrot hjá okkur á aðventunni sem byrjaði með aðventuhátíð sunnudaginn 3.desember. Þá stóð sóknarnefnd hreppsins fyrir skemmtun sem nemendur tóku þátt í með leik og söng.  Þann 12.desember var síðan jólahringekja þar sem unnið var með alls konar efnivið jólaföndur. Fimmtudaginn í þeirri viku fórum við...

Brunaæfing

Brunavarnir Árnessýslu komu með fræðslu inn í 3.bekk og sama dag var brunaæfing í skólanum. Nemendur og starfsmenn sýndu hárrétt viðbrögð og skólinn var rýmdur á undir 2 mínútur.

Næsta vika

Mánudagur 11.desember - Náttfata og dótadagur hjá 1-2bekk. Þriðjudagur 12.desember - Jólahringekja allur skólinn. Fimmtudagur 14.desember - Skógarferð fram að hádegi. Jólamatur í hádeginu. Föstudagur 15.desember - Heiður náms og starfsráðgjafi í skólanum Mánudagur 18.desember -  Litlu jólin frá kl. 9-11.  

Skáld í skólum

Rán Flygenring og Hjörleifur Hjaltason komu til okkar í skólann í vikunni. Með myndum, tali og tónum sögðu þau frá því hvernig sögur og bækur kvikna. Lífleg og skemmtileg heimsókn sem náði vel til nemenda.

Framundan

Nú hefur verið sent inn á öll heimili skipulag fyrir desember í skólanum. Mikið er um uppbrot á hefðbundnu skólastarfi og það er mikilvægt að undirbúa börnin, þannig að þeim líði sem best. Næsta vika: Mánudagur - Kirkjuheimsóknir Miðvikudagur - 7.bekkur í Flúðaskóla eftir hádegi Föstudagur - Jólafatadagur

Framundan

Mánudagur 26. nóvember Miðvikudagur 29. nóvember - Skáld í skólum kl.11.30 Fimmtudagur 30.október - Skólahópur Leikholts með 1.-2.bekk í þemavinnu um risaeðlur  

Lyftan vígð

Föstudaginn 10. nóvember var nýja lyftan í skólanum formlega vígð. Það var yngsti og elsti nemandinn í skólanum sem klipptu á borða og síðan fengu nemendur að prófa lyftuna. Á sama tíma færði Hákon Páll skólanum sleðasög í tilefni afmælis fyrirtækis hans, Selásbygginga og afmæli skólans. Sögin á eftir að...

Framundan

Miðvikudagur 22. nóvember  - Miðstigsgleði og vísindasmiðja hjá 7.bekk Fimmtudagur 23.nóvember - Starfsdagur nemendafrí

Afmæli skólans

Það var líf og fjör á afmælisdegi skólans í vikunni. Nemendur skólans tóku virkan þátt í að skipuleggja daginn og ákveðið var að hafa opið hús og mynda kaffihúsastemmningu. Yngri nemendur voru með poppvél og sælgæti og eldri buðu upp á smákökur og ávexti. Einnig voru tertur í boði sem...